Samgöngur

Strætó gengur á milli Reykjavíkur og Akranes. Hann fer frá Háholti í Mosfellsbæ og kemur inn í Akranes eftir Innesveg og heldur áfram Jaðarsbakka, Garðabraut, að Bæjarskrifstofunni, Kirkjubraut v/Stillholt og endar á Skrúðgarðinum / Upplýsingamiðstöð Akraness. Skrúðgarðurinn er ljómandi kaffihús í 7 mín göngufjarlægð frá Bakkatúni 20 (750 m).

Gestgjafi gistingarinnar getur eftir samkomulagi útvegað akstur til og frá Skrúðgarðinum/ Upplýsingamiðstöðinni.

Athugið það er frítt í innanbæjar Strætó Akraness.

Hér eru hlekkir á frekari upplýsingar og tímatöflur strætó til/frá/á Akranesi:

• Strætó.is leið 57 til/frá Akranesi - tímatafla

• Strætó.is leið 57- leiðarkort

• Gjaldskrá Strætó til/frá Akranesi - gjaldsvæði 3

• Strætó innanbæjar - tímatafla

2009-11 © Litla gistihúsið við sjóinn, co/Jóhanna Leópoldsdóttir, Bakkatúni 20, 300 Akranesi, 695 6255 & 588 3089