Velkomin

Jóhanna sýnir í Borgarnesi til og með 5. nóv. 2007

Glögga systirin Jóhanna Leópoldsdóttir er með myndlistarsýningu á Hyrnutorgi í Borgarnesi um þessar mundir. Sýningin stendur í október og fram í nóvember (til og með 5. nóv.) og er opin á opnunnar tíma fyrirtækjanna á staðnum. Jóhanna verður á staðnum alla föstudaga frá kl 12-19.  Sjá nánar.

Sigrún vefari með í sýningu í Gerðubergi til 11. nóv

Sýningin Handverkshefð í hönnun“ var opnuð 22. september og stendur til og með 11. nóvember og er opin virka daga frá kl. 11 - 17 og um helgar frá kl. 13 - 16. Þar eru sýnd verk 34 hönnuða, handverks- og listafólks og endurspeglar sýningin þá miklu grósku og kraft sem er ríkjandi á þessum vettvangi í dag. Markmiðið er að sýna verk þar sem handverkshefðin er nýtt sem innblástur að nýjum verkum.

Sigrún Skarphéðinsdóttir vefari er ein af 34 sýnendum, en hún er okkur að góðu kunn þegar hún sýndi með okkur Glöggum systrum í sumar.

Nánar um SigrúnuNánar um sýninguna

Lára sýnir Á næstu Grösum 7. okt. - 17. nóv. 2007

Lára Stefánsdóttir opnaði ljósmyndasýningu 7. október Á næstu grösum, Laugarvegi 20b í Reykjavík og mun sýningin standa til og með 17. nóvember.

Nánar um sýninguna

Nánar um Láru á heimasíðu hennar: lara.is

Námskeið væntanleg:

Í haust stefnum við að námskeiðahaldi á Akranesi.  Nú þegar er stemmt á tvö námskeið:

Þarftu að koma fram og standa fyrir máli þínu, langar þig að þroskast og dafna í stjórnunarstarfi í vinnunni, félagsstarfi eða auka sjálfstraust þitt?  Námskeið í ræðumennsku, áhersla á tækifærisræður.  Námskeiðið er ætlað konum eingöngu, ungum sem öldnum.  Umsjón Jóhanna Leópoldsdóttir.

Ljósmyndum með stafrænum vélum, vitlu taka betri myndir á nýju vélina þína?  Umsjón Lára Stefánsdóttir, sérfræðingur í upplýsingatækni og  kennslufræði.

© Glöggar systur