Fréttir
Lára Á næstu grösum - 7. okt. - 17. nóv. 2007
Lára sýnir Á næstu Grösum
Undanfarið hefur Lára Stefánsdóttir verið með ljósmyndasýningu á veitingastaðnum Staðurinn í Skipagötu 2 á Akureyri en það er grænmetisstaður og lýkur þeirri sýningu föstudaginn 5. október.
Sunnudaginn 7. október opnar Lára sýningu Á næstu grösum, Laugarvegi 20b, Reykjavík, gengið inn frá Klapparstíg og mun sýningin standa til og með 17. nóvember. Sýningin er opin á opnunartíma veitingahússins, mánudaga til laugardags kl. 11:30 til 22:00 en sunnudaga frá 17-22.
Gaman væri ef félagar, vinir og vandamenn kæmu, heilsuðu upp á listakonuna við opnun sýningarinnar, fengju sér að borða eða bara einn kaffibolla eða annað eftir atvikum við þetta tækifæri. Lára er í meistaranámi í heimilda- og fréttaljósmyndun í Academy of Art University í San Francisco, í fjarnámi og er því ekki eins mikið á ferðinni milli landshluta og stundum áður.
Þess vegna ætlar Glögga systirin Jóhanna Leópoldsdóttir að vera Á næstu grösum alla miðvikudaga milli kl. 18-20 að borða og spjalla við þá sem vilja. Jóhanna er bekkjarsystir Láru úr Samvinnuskólanum, samfélagi Láru í Púls 68 og umboðsmaður hennar.
Nánar um Láru á heimasíðu hennar: lara.is
Handverkshefð í hönnun 20. sept. - 11. nóv. 2007
Sigrún vefari með í sýningu í Gerðubergi
Opið virka daga frá kl. 11 - 17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Sýningin „Handverkshefð í hönnun“ verður opnuð laugardaginn 22. september kl 14. Þar eru sýnd verk 34 hönnuða, handverks- og listafólks og óhætt er að fullyrða að sýningin endurspegli þá miklu grósku og kraft sem er ríkjandi á þessum vettvangi í dag. Eins og titill sýningarinnar ber með sér er markmiðið að sýna verk þar sem handverkshefðin er nýtt sem innblástur að nýjum verkum.
Sigrún Skarphéðinsdóttir vefari er ein af 34 sýnendum, en hún er okkur að góðu kunn þegar hún sýndi með okkur Glöggum systrum í sumar.
Sýningin er unnin í samstarfi við Handverk og hönnun og Heimilisiðnaðarfélag Íslands (HFÍ) og er sett upp í tilefni Norræns heimilisiðnaðarþings dagana 26. - 30. september.
Leitað var eftir íslensku handverki, listiðnaði og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Valnefnd sá um að velja úr verkum á sýninguna.
Sama dag var opnuð sýning undir sama heiti í Norræna húsinu á verkum nemenda á öllum skólastigum (sjá www.nordice.is) auk þess sem hópurinn Faldafeykir sýnir verk í Listmunahorni Árbæjarsafns.
Handverk og hönnun í Ráðhúsinu - október 2007
Frænkur í Handverki og hönnun í Ráðhúsinu í Reykjavík
Leirkerasmiðurinn og frænka okkar, Ólöf Björk Oddsdóttir (Lóa) og Glögga systirin Margrét Oddný Leópoldsdóttir (Mold) voru valdar ásamt Dýrfinnu Torfadóttur, Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur og 53 öðrum listamönnum til þess að sýna á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu 5.-8. október 2007.
Opnunartími:
Föstudagur 5. október kl. 10 – 19
Laugardagur 6. október kl. 12 – 18
Sunnudagur 7. október kl. 12 – 18
Mánudagur 8. október kl. 10 - 19
Á sýningunni verður til sölu og sýningar mjög fjölbreytt íslensk hönnun, handverk og listiðnaður. Listamennirnir kynna sjálfir sína vöru og selja. Munirnir m.a. úr leðri, roði, horni, beinum, gleri, keramiki, postulíni, ull, silki, járni og tré.
Upplýsingar um alla þátttakendur má sjá á vef Handverks og hönnunar: www.hanndverkoghonnun.is
Viðbót eftir sýninguna:
Þökkum frábærar viðtökur á sýningunni.
Hér má sjá myndir af sýningunni.
Jóhanna í Hyrnunni 14. sept.- 2. nóv. 2007
„Snæfellsjökull flæðir“ í Hyrnunni
Jóhanna Leópoldsdóttir (f.1956) opnar myndlistarsýningu í Hyrnutorgi föstudaginn 14. september kl. 14.00 undir yfirskriftinni „Snæfellsjökull flæðir“. Myndirnar á sýningunni eru unnar með vatnslit á pappír. Þær eru málaðar í sumar og allar til sölu.
Opnun sýningarinnar er frá kl 14 fram á kvöld og fram eftir laugardeginum 15.september. Boðið upp á hressingu.
Sýningin stendur til og með 5. nóv. og er opin á sama tíma og starfsemi fyrirtækja og þjónustuaðila í Hyrnutorgi, alla virka daga 9.00 – 19.00, laugardaga 10.00-19.00 en 12.00 til 19.00 á sunnudögum.
Jóhanna verður á sýningarsvæðinu alla föstudaga frá kl 12-19 á meðan á sýningunni stendur. Það má einnig hafa samband við hana til ræða þær tímasetningar.
Jóhanna vonast sérstaklega til að sjá gamla vini og vinkonur, kunningja og samferðafólk frá þeim tíma sem hún bjó í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.
Jóhanna Á næstu grösum - september 2007
Jóhanna sýnir Á næstu Grösum
Glögga systirin Jóhanna Leópoldsdóttir er með myndlistarsýningu í september í matstofu veitingahússins Á næstu grösum, Laugarvegi 20b í Reykjavík. Um er að ræða vatnslitamyndir unnar á þessu ári með Snæfellsjökul sem viðfangsefni og eru myndirnar til sölu.
Sýningin er opin á opnunartíma veitingahússins, mánudaga til laugardags kl. 11:30 til 22:00 en sunnudaga frá 17-22.
Himinn og haf í Bakkatúni - júlí 2007
Himinn og haf
Sýning 6.-15. júlí 2007, í Bakkatúni 20, á Akranesi:
Fjórða árið í röð standa Glöggar systur fyrir sýningu á Írskum dögum á Skaganum.
Þær sem þegar hafa staðfest þátttöku eru Dýrfinna Torfadóttir skartgripahönnuður og gullsmiður, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir (Studio Subba) keramik hönnuður, Sigrún Skarphéðinsdóttir vefari, Lára Stefánsdóttir sem sýnir ljósmyndir, Jóhanna Leópoldsdóttir með vatnslitamyndir og Mold (Margrét O. Leópoldsdóttir) með hör löbera. Sýningin ber yfirskriftina „Himinn og haf“.
Verið öll hjartanlega velkominn milli 13.00 og 18.00 alla sýningardaganna, kaffi, spjall og fjölbreytt listaverk til að njóta.
Viðbót eftir sýninguna:
Met aðsókn var á sýninguna, hátt í 300 manns á tíu dögum. Við viljum þakka þeim, sem sáu sér fært að mæta, kærlega fyrir komuna sem var einkar ánæguleg af okkar hálfu.
Myndir af sýningunni er að finna hér.
Bókin Vinaslóð komin út - mars 2007
Vinaslóð
Í samstarfi við Púls 68 gefa Glöggar systur út ljósmynda- og ljóðabókina: Vinaslóð, Lára L-ára
Á bakhlið bókarinnar segir:
„Hjónunum Láru Stefánsdóttur og Gísla Gíslasyni er margt til lista lagt. Í þessari bók kallast ljóð Gísla á við ljósmyndir Láru á lágstemmdan en kankvísan hátt.
Bókin er gefin út af nokkrum skólafélögum þeirra frá Samvinnuskólanum í Bifröst í tilefni af fimmtugsafmæli Láru. Hún er helguð vináttunni og gildi hennar fyrir okkur öll í amstri dagsins, sorg og gleði.“
Bókin fæst í öllum betri bókabúðum landsins en einnig er hægt að panta hana hér.
Handverk og hönnun í Ráðhúsinu - október 2006
Frænkur í Handverki og hönnun í Ráðhúsinu
Leirkerasmiðurinn og frænka okkar, Ólöf Björk Oddsdóttir (Lóa) og Glögga systirin Margrét Oddný Leópoldsdóttir (Mold) voru valdar ásamt 58 öðrum listamönnum til þess að sýna á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu 26. - 29. október 2006:
26. okt. fimmtudagur 17:30 - 19:00 - OPNUN
27. okt. föstudagur 12:00 - 19:00
28. - 29. okt. laugardagur og sunnudagur 12:00 - 18:00
Á sýningunni verður til sölu og sýningar mjög fjölbreytt íslensk hönnun, handverk og listiðnaður. Listamennirnir kynna sjálfir sína vöru og selja. Munirnir m.a. úr leðri, roði, horni, beinum, gleri, keramiki, postulíni, ull, silki, járni og tré.
Einnig verða tónlistar uppákomur í tengslum við markaðinn.
Upplýsingar um alla þátttakendur má sjá á vef Handverks og hönnunar: www.hanndverkoghonnun.is.
Nær og fjær í Bakkatúni - júlí 2006
Nær og fjær
samsýning á vegum Glöggar systra í samstarfi við Púls 68
7. - 23. júlí 2006, Bakkatúni 20, Akranesi , opið: kl 13-18
Allir hjartanlega velkomnir og heitt á könnunni.
Á Írskum dögum á Akranesi verður haldin samsýning á myndlist, leirlist, ljósmyndum, skúlptúrum og hönnun, í stofunni í Bakkatúni 20, Akranesi, milli Bióhallarinnar og Slippsins, frá föstudeginum 7. júlí til og með sunnudeginum 23. júlí. Opið alla daganna frá kl 13-18.
Listakonurnar eru vinkonur, frænkur, skólasystur og systur. Þær búa á Akureyri, Ísafirði, Reykjavík, París og Akranesi og nálgast viðfangsefni sín ýmist í mikilli nánd eða fjarlægð.
Ólöf B. Oddsdóttir - Lóa, leirkerasmiður með leirkönnur og nælur.
Lára Stefánsdóttir, með ljósmyndir úr náttúrunni.
María Jónsdóttir, textílhönnuður með skúlptúra úr gleri og steypu.
Jóhanna Leópoldsdóttir, ástríðumálari með vatnslitamyndir.
Margrét O. Leópoldsdóttir - Mold, sjónlistakona með hörlöbera.
Viðbót eftir sýninguna:
Tengsl í Bakkatúni - júlí 2005
Tengsl
Á Írskum dögum á Akranesi verður haldin samsýning, á myndlist, leirlist og hönnun, í stofunni í Bakkatúni 20, milli Bióhallarinnar og Slippsins, frá föstudeginum 8. júlí til og með sunnudeginum 17. júlí. Opið alla daganna frá kl 13-18. Allir velkomnir og heitt á könnunni.
Listakonurnar eru allar barnabörn Margrétar O. Hjörleifsdóttur og Sigurðar Kristjánssonar í Hrísdal á Snæfellsnesi. Systur og frænkur í reynd og raun. Þær rekja ættlegg sinn alla leið til Melkorku Mýrkjartansdóttur Írakonungs.
Ólöf Björk Oddsdóttir - Lóa (f. 1958) leirkerasmiður og leiðbeinandi. Bollar, katlar og skálar úr steinleir og jarðleir.
Unnur G. Kristjánsdóttir (f. 1955) fatahönnuður og kennari. Handgerð veski með blandaðri tækni.
Margrét O. Leópoldsdóttir - Mold (f. 1967) listakona og læknir.
Dúkar, löberar og klútar, silkiþrykk á hör.
Jóhanna Leópoldsdóttir (f. 1956) ástríðumálari og guðfræðinemi. Myndir, vatnslitur á papír, Snæfellsjökull.
Viðbót eftir sýninguna:
Hér má sjá myndir af sýningunni.
Áhrif í stofunni heima í Bakkatúni 2004
Áhif
Við glöggu systurnar Jóhanna og Margrét, afkomendur Melkorku Mýrkjartansdóttur, settum upp, í tilefni af Fjölskylduhátíð á Írskum dögum á Akranesi 9. 10. og 11. júlí 2004, sýningu að heimili Jóhönnu, Bakkatúni 20 á Akranesi (milli Bíóhallarinnar og Slippsins).
Sýningin var opin frá kl. 13-18 dagana sem hátiðin stóð. Sýningin var afrakstur vatnslitaástríðu Jóhönnu og tuskuáráttu Margrétar. Sýningarstjórar voru Valgerður Helgadóttir og Helgi Guðmundsson.
ATH! Sýningin sem við settum upp á Írskum dögum hefur verið framlengd og er opin 24. - 28. júlí.
Viðbót eftir sýninguna:
Hér má sjá nokkrar myndir af verkunum okkar eins og þau komu fyrir á sýningunni, það gleymdist hinsvegar að taka myndir þegar gestirnir voru á staðnum.