Handverkshefð í hönnun 20. sept. - 11. nóv. 2007

Sigrún vefari með í sýningu í Gerðubergi

Opið virka daga frá kl. 11 - 17 og um helgar frá kl. 13 - 16

Sýningin Handverkshefð í hönnun“ verður opnuð laugardaginn 22. september kl 14. Þar eru sýnd verk 34 hönnuða, handverks- og listafólks og óhætt er að fullyrða að sýningin endurspegli þá miklu grósku og kraft sem er ríkjandi á þessum vettvangi í dag. Eins og titill sýningarinnar ber með sér er markmiðið að sýna verk þar sem handverkshefðin er nýtt sem innblástur að nýjum verkum.

Sigrún Skarphéðinsdóttir vefari er ein af 34 sýnendum, en hún er okkur að góðu kunn þegar hún sýndi með okkur Glöggum systrum í sumar.

Sýningin er unnin í samstarfi við Handverk og hönnun og Heimilisiðnaðarfélag Íslands (HFÍ) og er sett upp í tilefni Norræns heimilisiðnaðarþings dagana 26. - 30. september.

Leitað var eftir íslensku handverki, listiðnaði og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Valnefnd sá um að velja úr verkum á sýninguna.

Sama dag var opnuð sýning undir sama heiti í Norræna húsinu á verkum nemenda á öllum skólastigum (sjá www.nordice.is) auk þess sem hópurinn Faldafeykir sýnir verk í Listmunahorni Árbæjarsafns. 

© Glöggar systur