Handverk og hönnun í Ráðhúsinu - október 2007

Frænkur í Handverki og hönnun í Ráðhúsinu í Reykjavík

Leirkerasmiðurinn og frænka okkar, Ólöf Björk Oddsdóttir (Lóa) og Glögga systirin Margrét Oddný Leópoldsdóttir (Mold) voru valdar ásamt Dýrfinnu Torfadóttur, Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur og 53 öðrum listamönnum til þess að sýna á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu 5.-8. október 2007.

Opnunartími:

Föstudagur 5. október kl. 10 – 19

Laugardagur 6. október kl. 12 – 18

Sunnudagur 7. október kl. 12 – 18

Mánudagur 8. október kl. 10 - 19  

Á sýningunni verður til sölu og sýningar mjög fjölbreytt íslensk hönnun, handverk og listiðnaður. Listamennirnir kynna sjálfir sína vöru og selja. Munirnir m.a. úr leðri, roði, horni, beinum, gleri, keramiki, postulíni, ull, silki, járni og tré.

Upplýsingar um alla þátttakendur má sjá á vef Handverks og hönnunar: www.hanndverkoghonnun.is

Viðbót eftir sýninguna:

Þökkum frábærar viðtökur á sýningunni.

Hér má sjá myndir af sýningunni. 

< fyrri     næsta >

© Glöggar systur