Handverk og hönnun í Ráðhúsinu - október 2006

Frænkur í Handverki og hönnun í Ráðhúsinu

Leirkerasmiðurinn og frænka okkar, Ólöf Björk Oddsdóttir (Lóa) og Glögga systirin Margrét Oddný Leópoldsdóttir (Mold) voru valdar ásamt 58 öðrum listamönnum til þess að sýna á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu 26. - 29. október 2006:

26. okt. fimmtudagur 17:30 - 19:00 - OPNUN

27. okt. föstudagur 12:00 - 19:00

28. - 29. okt. laugardagur og sunnudagur 12:00 - 18:00

Á sýningunni verður til sölu og sýningar mjög fjölbreytt íslensk hönnun, handverk og listiðnaður. Listamennirnir kynna sjálfir sína vöru og selja. Munirnir m.a. úr leðri, roði, horni, beinum, gleri, keramiki, postulíni, ull, silki, járni og tré.

Einnig verða tónlistar uppákomur í tengslum við markaðinn.

Upplýsingar um alla þátttakendur má sjá á vef Handverks og hönnunar: www.hanndverkoghonnun.is.

< fyrri     næsta >

© Glöggar systur