Himinn og haf í Bakkatúni - júlí 2007

Himinn og haf

Sýning 6.-15. júlí 2007, í Bakkatúni 20, á Akranesi:

Fjórða árið í röð standa Glöggar systur fyrir sýningu á Írskum dögum á Skaganum.

Þær sem þegar hafa staðfest þátttöku eru Dýrfinna Torfadóttir skartgripahönnuður og gullsmiður, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir (Studio Subba) keramik hönnuður, Sigrún Skarphéðinsdóttir vefari, Lára Stefánsdóttir sem sýnir ljósmyndir, Jóhanna Leópoldsdóttir með vatnslitamyndir og Mold (Margrét O. Leópoldsdóttir) með hör löbera.  Sýningin ber yfirskriftina „Himinn og haf“.

Verið öll hjartanlega velkominn milli  13.00 og  18.00 alla sýningardaganna, kaffi, spjall og fjölbreytt listaverk til að njóta.

Viðbót eftir sýninguna:

Met aðsókn var á sýninguna, hátt í 300 manns á tíu dögum. Við viljum þakka þeim, sem sáu sér fært að mæta, kærlega fyrir komuna sem var einkar ánæguleg af okkar hálfu.

Myndir af sýningunni er að finna hér.

< fyrri     næsta >

© Glöggar systur