Lára Á næstu grösum - 7. okt. - 17. nóv. 2007

Lára sýnir Á næstu Grösum

Undanfarið hefur Lára Stefánsdóttir verið með ljósmyndasýningu á veitingastaðnum Staðurinn í Skipagötu 2 á Akureyri en það er grænmetisstaður og lýkur þeirri sýningu föstudaginn 5. október.

Sunnudaginn 7. október opnar Lára sýningu Á næstu grösum, Laugarvegi 20b, Reykjavík, gengið inn frá Klapparstíg og mun sýningin standa til og með 17. nóvember. Sýningin er opin á opnunartíma veitingahússins, mánudaga til laugardags kl. 11:30 til 22:00 en sunnudaga frá 17-22.

Gaman væri ef félagar, vinir og vandamenn kæmu, heilsuðu upp á listakonuna við opnun sýningarinnar, fengju sér að borða eða bara einn kaffibolla eða annað eftir atvikum við þetta tækifæri. Lára er í meistaranámi í heimilda- og fréttaljósmyndun í Academy of Art University í San Francisco, í fjarnámi og er því ekki eins mikið á ferðinni milli landshluta og stundum áður.

Þess vegna ætlar Glögga systirin Jóhanna Leópoldsdóttir að vera Á næstu grösum alla miðvikudaga milli kl. 18-20 að borða og spjalla við þá sem vilja. Jóhanna er bekkjarsystir Láru úr Samvinnuskólanum, samfélagi Láru í Púls 68 og umboðsmaður hennar.

Nánar um Láru á heimasíðu hennar: lara.is

© Glöggar systur