Kristín Sigfríður lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1997 og síðan Danmarks Design Skole í Kaupmannahöfn 1999 með aðaláherslu á leir og gler. Hún hefur tekið þátt í fjölda námskeiða og vinnustofa víðs vegar um heiminn. Hún hefur sýnt verk sín bæði hérlendis og víða erlendis. Kristín rekur Kirsuberjatréð ásamt níu íslenskum hönnuðum og einnig gallery r-21 í Kaupmannahöfn ásamt listamönnum frá Norðurlöndunum. Verkstæði Kristínar heitir Stúdíó Subba og er í Kópavogi.
Sölustaðir:
Stúdíó Subba, Hamraborg 1, 200 Kópavogi
Kirsuberjatréð, Vesturgötu 4, 101 Reykjavík
gallery r-21, Kaupmannahöfn
Sjá nánar heimasíðu Kristínar: subba.is