Jóhanna og Margrét Oddný Leópolds- og Olgudætur eru Glöggar systur. Þær bardúsa hitt og þetta varðandi menningu, listir, hönnun, jafnréttismál, félagsmál og heilbrigðismál.
Jóhanna er stóra systirin sem ræður öllu. Margrét er litla systirin sem gerir það sem henni er sagt. Oftast.
Jóhanna Leópoldsdóttir nemur guðfræði, kynjafræði og sálgæslu í Háskóla Íslands. Hún er einn dyggasti stuðningsmaður ÍA, 4. flokks stúlkna í fótbolta. Hún vatnslitar Snæfellsjökul af ástríðu og hefur gefið út gjafakort af verkum sínum. Hún er formaður Vesturlandsdeildar Gigtarfélags Íslands (GÍ) og önnur af talskonum Kvennahreyfingar Öryrkjabandalags Íslands.
Margrét Oddný Leópoldsdóttir (Mold) er læknir og sjónlistamaður að mennt. Hún starfar sem textílhönnuður og sinnir myndlist eftir þörfum. Hún tekur stundum að sér aðþrengda nemendur í stærðfræði og sannfærir þá um að það sé hægt að læra stærðfræði - jafnvel lesblindur. Hún er formaður Iktsýkishóps GÍ og situr í fulltrúaráði GÍ.