Kökuuppskrift frá mömmu, Olgu Sigurðardóttur, úr handskrifaðri námsbók hennar frá Húsmæraskólanum á Varmalandi 1952-1953 þar sem hún nam undir styrkri stjórn skólastýrunnar Fröken Vigdísar Jónsdóttur frá Deildartungu, sem síðar varð skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands, nú á Dvalarheimilinu í Borgarnesi. Verklýsing er að mestu mín þar sem á þeim árum sem uppskriftin er skráð var gert ráð fyrir að allar konur kynnu grundvallar atriði í bakstri á hnoðuðu smákökum. Tímarnir breytast og konurnar með.
Uppskrift
Hnoðað deig, athugið að lesið alla uppskriftina og verklýsingu áður en hafist er handa.
1.6 kg hveiti
1 kg mjúkt smjör/ smjörlíki,
10 matskeiðar kakó
1 kg. sykur
8-10 matskeiðar vanilludropar
5-6 egg til penslunnar
500 til 750 gr. saxaðar möndlur.
Hnoðað og rúllað í lengjur, fingur breiðar, ca. 2 cm, en umfram allt svipað breiðar, skorið í 6 cm langa bita, smurt með eggi, dýft í saxaðar möndlur þannig að þær loði vel við, lagt á smurða plötu eða plötu með bökunarpappír, með bili á milli, bakað við mikinn hita, 200 –220 gráður C. Bökunartími fer svolítið eftir ofnum og stærð á hverri köku ca.8-14 mínútur, en um að gera að fylgjast vel með fyrstu plötunni, fyrir þá sem ekki hafa mikla reynslu af bakstri þá eiga kökurnar að vera þurrar og þær verða stökkar þegar þær kólna.
Aðal atriðið er að njóta þess að baka ein/einn, með fjölskyldu eða vinum. Uppskriftin er stór, skellið í krukkur eða dúnka og gefið gömlum vini, félögum eða fjölskyldu. Kannski er líka hægt að semja við vinkonu um að skipta á tegundum, það er jú miklu fljótlegra og auðveldara að baka sömu uppskriftina eða stóra uppskrift af einni tegund en margar tegundir í litlum skömmtum. Fyrstu jólin sem ég hélt sjálf á eigin heimili með góðum vinum þá gerði ég fimm eða sex svona deig - ég mæli ekki með því, það reyndist heldur mikið ! Ég hafði þá aldrei á ævi minni séð bakað úr 200 eða 250 grömmum af hveiti, mamma bakaði alltaf minnst úr tveim til þrem kílóum. Hún stóð ásamt pabba fyrir umfangsmiklum veitingarekstri í Hreðavatnsskála í Borgarfirði öll mín uppvaxtar ár.
Nú hef ég reynslu af því að baka alls ekki neitt fyrir jól, kaupa kökur, fá þær gefins og baka með börnunum mínum eða örðum nákomnum og allt hefur reynst afskaplega vel.
Flestar fjölskyldur eru með mörg verkefni í gangi og búa við mikið álag. Ekki gleyma því heldur að það fást góðar kökur hjá næsta bakara eða í matvörubúðinni ef þið hafið ekki tíma eða nennið ekki að standa í bakstri. Það er líka allt í lagi að sleppa kökunum alveg. Með von um að við eigum sem allra flest kærleiksríka aðventu og gleðileg jól.
Jóhanna Leópoldsdóttir