Fréttir
Nýtt! Litla gistihúsið við sjóinn á Akranesi
Litla gistihúsið við sjóinn á Akranesi er nýtt gistiheimili á Bakkatúni 20 og tekur til starfa laugardaginn 14. mars 2009. Gestgjafi er Jóhanna Leópoldsdóttir. Í boði eru þrjú 2ja manna herbergi. Gistingin verður opin allt árið. Tekið er við greiðslukortum.
Gatan Bakkatún liggur á milli Slippsins og Bíóhallarinnar. Húsið á Bakkatúni 20 er byggt árið 1930 og var mjög stórt á þess tíma mælikvarða og stendur við eina fallegustu götu í eldri hluta bæjarins, svo kölluðum Neðri-Skaga.
Akranes er rúmlega 6000 manna bæjarfélag sem stendur á samnefndu nesi. Frá upphafi hafa fiskveiðar og vinnsla verið undirstöðu atvinnuvegur íbúanna, þó í seinni tíð hafi verslun, þjónusta og framleiðsla ýmiskonar bæst við. Akranes er í suðvestarnverðu landinu og frá Bakkatúni er útsýni suður á Reykjanes og úr næstu götu má sjá fjöllin í Borgarfirði og allan Snæfellsnes fjallgarðin þar sem Snæfellsjökunn er kóróna sköpunarverksins, Snæfellsjökull sem þekktur er um víða veröld vegna orku sinnar, fegurðar, eldvirkni og einstakrar stöðu í heimsbókmenntunum.
Nánar heimasíðu Litla gistihússins við sjóinn á Akranesi
„Snæfellsjökull flæðir“
Vatnslitamynd e. jóhönnu
Hyrnutorgi, Borgarnesi, 14. september - 5. nóvember 2007
Jóhanna Leópoldsdóttir (f.1956) opnar myndlistarsýningu í Hyrnutorgi föstudaginn 14. september kl. 14.00. Myndirnar á sýningunni eru unnar með vatnslit á pappír, þar sem viðfangsefnið er Snæfellsjökull. Myndirnar eru málaðar í sumar og allar til sölu.
Sýningin stendur til og með 5. nóvember og er opin á sama tíma og starfsemi fyrirtækja og þjónustuaðila í Hyrnutorgi, alla virka daga 9.00 – 19.00, laugardaga 10.00-19.00 en 12.00 til 19.00 á sunnudögum.
Opnun sýningarinnar er frá kl 14 fram á kvöld og fram eftir laugardeginum 15.september. Boðið upp á hressingu. Hún verður á sýningarsvæðinu alla föstudaga frá kl 12-19 á meðan á sýningunni stendur. Enn einnig má hafa samband við hana til ræða þær tímasetningar.
Jóhanna vonast sérstaklega til að sjá gamla vini og vinkonur, kunningja og samferðafólk frá þeim tíma sem hún bjó í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.
Jóhanna hefur haldið nokkrar sýningar á vatnslitamyndum sínum eftir árið 2000. Einkasýningar í Fjöruhúsinu á Hellnum, Þjónustumiðstöðinni í Baulu, á Safnasvæðinu á Görðum á Akranesi og nú stendur yfir út september sýning á veitingahúsinu á Næstu grösum við Laugarveg í Reykjavík.
Hún er í samstarfi í menningarstarfsemi og sjónlistum við Margréti systur sína sem er útskrifuð í LÍ árið 2001, það samstarf heitir Glöggar systur. Þær hafa tekið þátt í og staðið fyrir samsýningum í stofunni heima á Bakkatúni á Akranesi undangengin fjögur ár ásamt ýmsu öðru.
Jóhanna á einnig í samstarfi við Maríu Jónsdóttur bekkjarsystur sína frá Bifröst sem nú er sjálfstætt starfandi listakona menntuð í LÍ og Láru Stefánsdóttur sem einnig er bekkjarsystir frá Bifröst en hún stundar nú meistaranám í fjarnámi við Listaháskólan í San Fransiskó. Samstarfið hefur fengið nafnið Púls 68. Og er alveg sérstök saga á bak við þá nafngift sem líklega verður opinberuð síðar á vettvangi Hollvinasamtaka Bifrastar.
Jóhanna hefur ekki formlega menntun í myndlist en hefur sótt nokkur námskeið sem tengjast sjónlistum og sköpun, m.a. í saumaskap, hannyrðum, garðyrkju, matreiðslu og sótt þekkingu í bækur, hjá öðru listafólki og með því að skoða myndlist, náttúruna og fylgjast með fræðsluefni um þessi efni í útvarpi og sjónvarpi.
„Á næstu grösum“
vatnslitamynd e. jóhönnu
Reykjavík september 2007
Jóhanna Leópoldsdóttir er með myndlistarsýningu í september í matstofu veitingahússins Á næstu grösum, Laugavegi 20b í Reykjavík. Um er að ræða vatnslitamyndir unnar á þessu ári með Snæfellsjökul sem viðfangsefni og eru myndirnar til sölu.
Sýningin er opin á opnunartíma veitingahússins, mánudaga til laugardags kl. 11:30 til 22:00 en sunnudaga frá 17-22.
Ég verð á staðnum að borða og spjalla við þá sem vilja milli kl. 18-20 alla miðvikudaga út október. Lára vinkona mín verður einmitt með sýningu á eftir mér í október og ég er umboðsmaðurinn hennar!
Takk
Helgi og jóhanna í Portúgal
Akranesi 21. desember 2006
Takk fyrir mig, draumurinn rættist, ég fór til Portúgal með Helga og Valgerði, þökk sé ykkur öllum kæru vinir og vandamenn. Valgerður plataði síðan ömmu sína til að koma með sem gerði ferðina enn betri.Já, draumar hafa tilhneigingu til að rætast, í það minnsta gerist ekkert ef draumurinn eða hugmyndin kemur ekki fyrst. Og þó við séum ekki lengur alltaf í kaffi eða á djamminu saman, þá gleymum við ekki vinum okkar sem betur fer. Ég hugsa til ykkar og þið hugsið greinilega til mín ;-)
Við áttum góða daga í tvær vikur um mánaðarmótin ágúst og september í Portúgl, amma þrautreynd í sólarlandaferðum. Helgi hafði aldrei áður komið á sólarströnd í Suður Evrópu, Valgerður “fílaði í botn” að koma til heitara lands en ég komin að mestu úr æfingu sem heimshornaflakkari. Vel heppnað frí og öll nutum við ferðarinnar en myndirnar segja meira en mörg orð um það. Valgerður velur myndir sem settar verða á síðuna von bráðar.
Minna fór fyrir hinum hluta afmælisboðsins, það er að þið kíktuð við á Bakkatúninu, ég vil bendi ykkur á að ólíkt öðrum tilboðum þá rennur þetta boð ekki út, kæru vinir, félagar, samstarfsfólk og frændgarður verið ávalt velkomin. Á sumrin eru oft myndlistarsýningar hér í stofunni (
www.leopold.is/gloggarsystur) og margt að skoða á Akranesi (www.akranes.is) , gott að koma með börn og barnabörn, fara á Langasand og í sund eða á Byggðasafnið í Görðum. Hér er líka frábær gullsmiður og skartgripahönnuður, hún Dýrfinna Torfadóttir (www.diditorfa.com), sem er upplifun að heimsækja.
Myrkrið er mikið þessa daganna og vindurinn lemur húsið okkar, þá er notalegt að vera inni að dunda sér. 21. desember hefur um langan aldur verið sérastakur hátíðisdagur fyrir Helga, Þá er skemmstur dagur. Þetta er arfleifð þess að alast upp þar sem heitir Skuggahlíð.
Við erum tilbúin að taka á móti jólunum hér í Bakkatúninu. Mig langar að heimsækja nokkrar góðar konur fyrir jólin í Reykjavík, sjáum til með það. Um leið og ég þakka fyrir vináttu, hlýhug og samfylgd þá óska ég ykkur gæfu og góðra daga með áhugaverðum verkefnum í lífinu. Vona að þið sjáið og kunnið að meta það sem gott er og bið að þið hafið styrk og úthald í það sem erfiðara er. Farið vel með ykkur og verið góð við ykkar nánustu.
ykkar Jóhanna
Ég á mér draum
Bakkatúni á Akranesi í apríl 2006
Kæru vinir, félagar,samstarfsfólk og frændgarður.
Þann 3. maí hefur líf mitt spannað hálfa öld. Ég ætla ekki að bjóða til hefðbundinar veislu á afmælisdaginn m.a. vegna þess að ég er að fara í viðamikil hátíðarhöld í tilefni af þrjátíu ára útskriftarafmæli frá Samvinnuskólnaum á Bifröst um sama leyti.
Mér og fjölskyldu minni væri það hinsvegar mikil ánæja ef þú/þið sæuð ykkur fært að koma í kaffi í sumar hingað í Bakkatúnið. Við erum heima við flesta daga og bæði heimavinnandi. Yfir sumarið slær Helgi í pönnukökur við öll tækifæri sem gefast og ég bý til fiskisúpu fyrir gesti þegar ég mögulega get. Þau ykkar sem viljið taka ykkur saman með gömlum vinnu- eða skólafélögum er það velkomið. Ágætt að hringja fyrst því við erum oft ekki langt undan, kannski bara í sundi eða úti í búð.
Ég á mér þann draum að geta farið með Helga og Valgerði til Portúgal í haust og þætti því vænt um að þau ykkar sem langar að gefa mér afmælisgjöf leggi mér lið í að láta þennan draum rætast. Reikningurin er í útibúi LÍ á Borgarfirði Eysta 0175-18-465240, kt.030556-5859. Munið að margt smátt gerir eitt stórt!
Vonast til að sjá ykkur sem allra flest á Skaganum í sumar,
Hafið alúðar þakkir fyrir samfylgdina í lífinu,
Kærar kveðjur
Jóhanna, ung í anda.
Ps
Ég vil líka geta þess að við systurnar og fleiri, erum með samsýningu á verkum okkar á Írskum dögum í sumar eins og undangengin sumur og þá væri sérstaklega gaman að sjá þig / ykkur. Sýningin er opin 7.júlí til 23.júlí opið 13-18 alla daga.