Ég gef reglulegu út kort af vatnslita myndunum mínum. Þau má sjá hér á síðunni og eru að sjálfsögðu til sölu.
Athugið að kortin eru prenntuð í takmörkuðu upplagi og ekki endurprenntuð!
Þau eru án texta og því tilvalin við ýmis tækifæri. Þau geta nýst sem gjafa-, jóla-, fermingar-, útskriftar-, skírnar- eða minningarkort. Kjölur þeirra er eftir vinstri röndinni og þau opnast því öll til vinstri. Stærð þeirra er miðuð við að hægt sé að prennta kveðju inní kortið í venjulegum heimilis prenntara ef fólk vill. Umslög fylgja kortunum.
Ef þú vilt kaupa kort sendu mér þá tölvupóst á: johanna@leopold.is með upplýsingum um hvaða kort þú villt fá (sjá nr. kortanna á síðunni) og hvert á að senda þau.>Ég sendi kortin hvert sem er í heiminum.
Einnig má hringja í síma: 695-6255 eða 588-3089














