... í fyrstu persónu eintölu.
blogg
Frétt!
Ég, Margrét Oddný Leópoldsdóttir, og móðir mín, Olga Sigurðardóttir, verðum að selja hjörtun hennar Lúllu á jólamarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur í Elliðavatnsbænum sunnudaginn 6.desember 2009.
Markaðurinn er opinn frá kl. 13-17 og margt um að vera, uppákomur, upplestur, jólatrésala og margt fleira. Sjá nánar heimasíðu Skógræktarfélagsins og kort af leiðinni til Elliðavatnsbæjarins.
pólitík
Heyrði eftirfarandi á Rás 2 í gær þar sem kona fyrir austan var spurð út í pólitíkina: "Æji það er svo sorglegt hvað það eru margir meðvirkir með Sjálfstæðisflokknum... en fólki er náttúrulega ekki sjálfrátt, þetta er auðvita bara sjúkdómur"
Hreðavatnsvalsinn
Úti við svalan sæinn
syng ég mín ástarljóð,
dýrlegum dagsins draumum í
dvel ég við forna slóð.
Þú varst minn æsku engill,
ást mín var helguð þér.
Þegar ég hugsa um horfna tíð,
hugur minn reika fer.
Manstu hve gaman,
er sátum við saman
í sumarkvöldsins blæ,
sól var sest við sæ,
svefnhöfgi’ yfir bæ.
Við hörpunnar óma
í hamingjuljóma
þá hjörtu’ okkar börðust ótt,
allt var orðið hljótt,
yfir færðist nótt.
Dreymandi í örmum þér,
alsæll ég gleymdi mér,
unaði fylltist mín sál.
Brostirðu blítt til mín,
blikuðu augu þín
birtu mér huga þíns mál.
Manstu hve gaman,
er sátum við saman
í sumarkvöldsins blæ,
sól var sest við sæ,
svefnhöfgi yfir bæ.
Atli Þormar
the two wolves
One evening an old Cherokee told his grandson about a battle that goes on inside people.
He said, "My son, the battle is between two 'wolves' inside us all.
One is Evil.
It is anger, envy, jealousy, sorrow, regret, greed, arrogance, self pity, guilt, resentment, inferiority, lies, false pride, superiority and ego.
The other is Good.
It is joy, peace, love, hope, serenity, humility, kindness, benevolence, empathy, generosity, truth, compassion and faith.
The grandson thought about it for a minute and than asked his grandfather: "Which wolf wins?"
The old Cherokee simply replied, "The one you feed".
Kjarval
Gleðilegt ár öll sömul. Megi það vera sem flestum heilladrjúgt með afbrigðum.
Það er heilmikið fyrirtæki að vera manneskja. - Jóhannes Sv. Kjarval
Þórbergur
Megnið af volæði veraldarinnar stafar af skorti á ímyndunarafli. - Þórbergur Þórðarson , Bréf til Láru
tilvitnanir
Þjóðin er að kafna í glansumbúðum. - Þórarinn Björnsson [1905 - 1968] Skólameistari Menntaskólans á Akureyri (1948-1968)
gleðileg jól
Gleðileg jól öll sömul!
Eftirfarandi tilvitnun var í einu af jólabréfunum sem ég fékk:
Þegar öllu er á botninn hvolft, þá fer allt einhvernveginn, þótt margur efist um það á tímabili. -Halldór Kiljan Laxness, Sjálfstætt fólk

þetta er nú meira volæðið...
Ég fór frá Englandi daginn eftir að Gordon Brown sagðist hafa bjargað heiminum. Fanst mælirinn fullur og fósturjörðin kallaði.
Hef legið í eymd og volæði þessa viku sem ég hef verið heima. Með mestu skítapest sem ég hef fengið um dagana. Þetta er reyndar hið besta sparnaðarráð og skyndi megrun.
Verst hvað það er erfitt að láta fram hjá sér fara hvað stjórnvöld eru orðin GA GA. Það er súrrealískt að sjá ALLT þetta fólk sem situr við stjórnvölinn hér vera búið að missa glóruna. Ég spyr mig hvernig getur þetta fólk litið í spegil á morgnanna án þess að sogast niður um niðurfallið í vaskinum af skömm. Það er eins og þau séu í brjáluðum tölvuleik að spila með líf fólks í landinu eins og það væri búfénaður með garnaveiki. Nema að geimverur hafi tekið sér bólfestu í öllu batteríinu og séu að yfirtaka heiminn.
vera í Lundúnum
Kominn heim frá Lundúnum. Var þar rúmar 4 vikur sem aupair hjávinkonu minni. Á meðan var maður hennar hér með hundinn minn.
Skrítið vægast sagt að vera þarna þegar ósköpin dundu yfir þjóðina og bretar gengu af göflunum. Ísland til umfjöllunar í blöðunum alla daga og í heila viku á forsíðum. Íslands líka í öllum fréttatímum í útvarpi og sjónvarpi og í skemmtiþáttum líka! Í miðborginni var farið að selja stuttermaboli merkta: BOMB ICELAND. Það átti víst að vera grín gagnvart Gordon Brown og hans ýktu viðbrögðum. En börn skilja ekki slíkan kaldhæðins húmor.
En talandi um kaldhæðni. Bretum er svo illa við okkur að meira segja gerðist ein breskur fugl svo djarfur að varpa á mig skítabombu! Stórri brúnni heitri skítaklessu. Kanski var það ekki fugl heldur íkorni upp í tré. Hvað veit ég?

Að öðru leiti var gott að vera í Englandi hjá vinkonu minni, þau eru öll svo indisleg. Veðrið með eindæmum milt og gott, nánast alltaf logn. Oftast hægt að vera á flíspeysunni úti nema kanski snemma á morgnanna. Svo kom ein vinkona mín með mér út og önnur með mér heim.
mér finnst þessi góður!
Ef þið sjáið ekki vídeóið þá skuluð þið reyna þessa slóð: http://www.youtube.com/watch?v=Wr24iPXhFJct
morgunstund

Hér er séð niður Setbergsholtið í suðaustur í morgun við sólarupprás. Þarna rétt grillir í Urriðavan/ Urriðakotsvatn og bak við það er Uriðavatnsholt sem er verið að undirbúa sem byggingarland Garðbæjinga (byggingu Garðarbæjarmegin í Setbergsholtinu - hérna megin við vatnið hefur verið frestað um óákveðin tíma - segið svo ekki að kreppan leiði ekki eitthvað gott af sér).
sinubrunar
Í gær logaði Setbergsholtið þriðja daginn í röð.
Það hefur ekki verið hægt að hafa opin glugga hér svo nokkru nemur hér síðan á sunnudagskvöldið vegna reykjarsvælu og brunalyktar. Þetta er engu betra en þegar ástandið var verst á Vatnsstígnum, bæjarblokkin við hliðina með allt sitt ólánsfólk og brennuvarg sem kveikti í a.m.k. einu sinni í mánuði og 3svar sömu helgina.

Á mánudags hádegi blasti bálið aftur við og var alveg komið upp að limgerði á húsi við hliðina á blokkinni minni. Snjóvarnargirðinginn brann til kaldra kola og eigendur húsins í Lindarbergi áttu fullt í fangi með að verja lóð sína og hús. Slökkvuliðið kom seint og um síðir og aðstoðaði.
Hér að neðan eru vegsummerki síðustu nætur. Þá nálgaðist bálið Klukkubergið og blokkina mína óðfulga og reykjarsvælan lá yfir öllu. Polki minn heldur seinn til að reyna að slökkva eldin með því að míga á hann.

jæja
En ég er búin að eignast nýja frænku. Þorbjörg og Garðar áttu eina litla sæta stelpu 30. mars og gengur vel.
meiri snjó takk

Jebb. Þetta er rétt lesið hjá þér: meiri snjó takk. Líklegast eru mér ekki margir sammála en ég hlakka til að fá meiri snjó. Lífið hjá mér er einfaldara, hreinna og hreyfanlegra með snjónum. Þegar það er snjór er Polki alltaf hreinn, tandur hreinn því hann borar sér niður í skaflana og velltir sér upp úr snjónum. Skórnir mínir er líka hreinir og það er auðveldara að ganga í óræktinni hér á bak við hús.
að bora í stein
Fimmtíu og eitt gat á vegg og 14 í loft fyrir utan götin 20 í gipsveggi. Þetta er afrek mitt sl. 6 vikur hérna á nýjum stað. Við þetta hef ég bætt vinnubrögðin með fenginni reynslu. Hef komist að því að til er hjálpartæki bæði við að bora í vegg og loft. Annað virkar, hitt ekki.
Annað fæst í Byko, notað til að safna steinrykinu þegar borað er í loft og á að vera margnota. Það virkar illa og er algert drasl og ónýtt eftir 2-3 boranir. Ég finn það ekki á netinu en það er frá Lux® (logoið er eins og krossgáta með orðið LUX tvítekið lárétt og lóðrétt).
Hitt það sem virkar heitir Dust bubble og fæst í Brynju við Laugarveg og er notað þegar borað er í vegg til að steinrykið fari ekki út um allt og það svínvirkar. Ég mæli með týpunni með græna miðanum (sterkasta límið en alveg óhætt að nota á málaða fleti).
Ef maður er sterkur og nákvæmur í höndunum getur maður náttúrulega verið bara með ryksuguna í annari hendi og borvélina í hinni og borað og ryksugað á sama tíma. Fyrir okkur sem getum það ekki svo vel sé þá er Dust bubble málið þegar borað er í vegg en hafa aðstoðarmann á ryksugunni þegar borað er í loft.




