afmælisboð
Verð fertug 21. febrúar. Búin að ákveða að halda afmælisboð sunnudaginn 18. febrúar að heimili mínu.
Þetta verður svokallaður brunch sem byrjar kl. 12 og stendur fram eftir degi á heimili mínu.
Fjölskylda mín, vinir og velgjörðarmenn velkomnir.
Eins og ég hef áður komið inná hér þá langar mig mest að fá aur í afmælisgjöf í söfnun mína fyrir myndavél .
Eftir að ég opinberaði þennan draum minn þá komst ég að því að Jóhanna systir er lögnu búin að stofna söfnunar reikning fyrir mig á Landsbankanum í Borgarfirði Eystri. Hún gerði það í kjölfar ljósmyndaleiðangurs okkar í sumar og hér má sjá afrakstur þeirrar ferðar. Reikinsnúmerið er 0175-05-71197 og kt.: 210267-3609. Munið bara að margt smátt gerir eitt stórt.

