komin með draumavélina
Takk fyrir mig, ég er komin með drauma myndavélina í hendurnar.
Frábært. Við erum að kynnast hvor annarri þessa dagana.
"Hver er sinnar gæfu smiður"
Takk fyrir mig, ég er komin með drauma myndavélina í hendurnar.
Frábært. Við erum að kynnast hvor annarri þessa dagana.
Mig langar að þakka öllum kærlega fyrir mig.
Afmælisveislan gekk vel og það var gaman... a.m.k. hjá mér.
Vona að heilsan fari að skána hjá þeim sem misstu af veislunni vegna veikinda.
Stutt í næstu veislu.
Jæja, byrjuð að rýma til fyrir afmælið.
Búin að tæma fatahengið í pínulitlu forstofunni minni sem nú virkar helmingi stærri.
Líka búin að kaupa blöðrurnar.
Hvernig er þetta, er það bara ég sem upplifi þá tilfinningu að verið sé að ræna mig þegar menn boða nýjan veg yfir Kjöl með veggjöldum?
Einkaframkvæmd - sjálfsagt að taka veggjald til að standa straum af kostnaði segja menn. En það er ekkert réttlæti í því að nokkrir menn EIGI svo veginn um ókomna tíð með áframhaldandi veggjaldstöku. Þetta er ekki siðferðilega rétt. Ég vissi ekki að þetta mætti. Eigum við ekki öll landið. Ég kem bara alveg af fjöllum, verð ég að segja.
Finnst öllum þetta bara allt í lagi?
Það er ekki verið að tala um framkvæmd eins og Hvalfjarðargöngin þar sem enginn vegur var fyrir og veggjald verður bara rukkað til að ná inn fyrir kostnaði en síðan ekki söguna meir og vegagerðin/ríkið/við eignumst svo göngin eftir það. Ekki þar fyrir að ég sé alltaf á leið um kjöl - hef reyndar aldrei farið alla leið - en mér finnst verra að ég eigi í framtíðinni ekki möguleika á alka þann veg frítt. Það er verið að ræna mig hálendinu. Þetta er frelsis svipting.
Mér finnst fáránlegt að menn geti í krafti auðæfa sinna ákveðið að smíða nýjan veg, þar sem þeim langar til, í staðin fyrir annan veg - að vísu vondan en frían - og rukki svo bara alla AÐRA fyrir kostnaðinum og ekki nóg með það heldur haldi svo bara áfram að rukka eins lengi og mikið og þeim sjálfum sýnist.
Mér finnst þessi mynd rammskökk og ég þoli ekki skakkar myndir.
Svona er ég nú eins og álfur út úr hól.
Eða bara dramatísk.
En hef alltaf rétt fyrir mér þó.
© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831