blogg Archive febrúar 2008

meiri snjó takk

_IGP2135

Jebb. Þetta er rétt lesið hjá þér: meiri snjó takk. Líklegast eru mér ekki margir sammála en ég hlakka til að fá meiri snjó. Lífið hjá mér er einfaldara, hreinna og hreyfanlegra með snjónum. Þegar það er snjór er Polki alltaf hreinn, tandur hreinn því hann borar sér niður í skaflana og velltir sér upp úr snjónum. Skórnir mínir er líka hreinir og það er auðveldara að ganga í óræktinni hér á bak við hús.

að bora í stein

Fimmtíu og eitt gat á vegg og 14 í loft fyrir utan götin 20 í gipsveggi. Þetta er afrek mitt sl. 6 vikur hérna á nýjum stað.  Við þetta hef ég bætt vinnubrögðin með fenginni reynslu. Hef komist að því að til er hjálpartæki bæði við að bora í vegg og loft. Annað virkar, hitt ekki.

Annað fæst í Byko, notað til að safna steinrykinu þegar borað er í loft  og á að vera margnota. Það virkar illa og er algert drasl og ónýtt eftir 2-3 boranir. Ég finn það ekki á netinu en það er frá Lux® (logoið er eins og krossgáta með orðið LUX tvítekið lárétt og lóðrétt).

Hitt það sem virkar heitir Dust bubble og fæst í Brynju við Laugarveg og er notað þegar borað er í vegg til að steinrykið fari ekki út um allt og það svínvirkar. Ég mæli með týpunni með græna miðanum (sterkasta límið en alveg óhætt að nota á málaða fleti). 

Ef maður er sterkur og nákvæmur í höndunum getur maður náttúrulega verið bara með ryksuguna í annari hendi og borvélina í hinni og borað og ryksugað á sama tíma. Fyrir okkur sem getum það ekki svo vel sé þá er Dust bubble málið þegar borað er í vegg en hafa aðstoðarmann á ryksugunni þegar borað er í loft.

Sorpa

Ég heimsæki Sorpu nánast daglega þessa dagana, endurvinnsla, endurvinnsla.


Ótrúlegt hvað ég er lengi að koma mér fyrir í Klukkuberginu. Hvernig fer fólk venjulega að þessu? Annars líður mér vel hérna í sveitinni og snjónum og Polki fílar þetta í tætlur.

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831