blogg Archive mars 2007

pabbi og skatturinn

Pabbi er heldur betri en ekki komin í takt. 

 

Skilaði skattaskýrslunni 9 mínútum fyrir frestinn sem ég fékk. Aldrei lærir maður af reynslunni með hana. Hún er aðeins flóknari en svo að ég bara samþykki tölurnar sem búið er að setja inn því ég þarf að gera rekstrarreikning fyrir starfsemi mína sem listamaður. Gleymi því greinilega milli ára hvað mér finnst gaman að sortera og raða.

pabbi og framsóknarflokkurinn

Pabbi og Framsóknarflokkurinn eru jafn gamlir. Níræðir á árinu.

  

Ég óska þess að örlög þeirra séu ekki algerlega samtvinnuð þó mig gruni annað. Alla vega þá vona ég að pabbi komist í réttan takt á næstu dögum. Hann er með einhverja væga hjartsláttaróreglu sem verið er að vinna í að koma í lag. Honum líður ekki illa en er þróttlaus. Þessa stundina er því hægt að segja að Pabbi og Framsóknarflokkurinn séu báðir orðnir nokkuð framlágir og ekki alveg í takt við samferðamenn sína. Vona bara að Pabbi hafi sig upp úr þessu. Þó það kosti mig að óska að Framsókn lifi af. Þá bít ég í það súra epli - Pabba vegna.

Árni gamli er dáinn

Alla mína fjörutíu ára ævi hefur hann aldrei verið kallaður annað en Árni gamli.


Pasted Graphic


Hann var ráðsmaður í Hreðavatnsskála og lét okkur krakkana tína rusl á hlaðinu meðan hann sópaði stéttina. Á þessari mynd sem var tekin 1965 er hann í rútuferðalagi með öðru starfsfólki úr Hreðavatnsskála.


Blessi þig Árni gamli. Þú varst ógleymanlegur.

Andy Capp

unknown


Take nothing but pictures

Leave nothing but footprints

Kill nothing but time

áfram stelpur

Fögnum því að til stendur að banna launaleynd.

 

Gott hjá félagsmálaráðherra eða öllu heldur Guðrúnu Erlendsdóttur formann nefndarinnar sem lagði þetta til við félagsmálaráðherra. Það hafa greinilega margir hugsað honum þegjandi þörfina vegna þessa því Magnús veiktist skyndilega rétt áðan. Vonum að það sé ekki alvarlegt. Magnús er nefnilega eini framsóknarmaðurinn sem gerir eitthvað gagn í þessari ríkisstjórn og gengur mjög vasklega fram í þeirri iðju sinni - sem er mjög gott. 

Geirsnef

Geirsnef

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831