blogg Archive maí 2007
sumarið komið
Ég get ekki betur séð en að sumarið sé komið.
Verð líklegast við garðyrkjustörf á morgun.
jamm
Systir mín í Berlín spyr á kommenta kerfinu hvernig við Polki höfum það. Þá er líklega tími kominn til að blogga aðeins.
Svarið er: gott.
Ég er reyndar að drepast í vinstri hendinni, Polki sefur ekki fyrir kláða og ríkissjtórnin hélt. En það er ekkert nýtt við löfum öll einhvern vegin samt.
Að öðru leiti er lífið gott. Ég er þakklát fyrir þessa yndislegu björtu nætur sem hafa nú gengið í garð. Talandi um garð þá er gott að eiga garðholu í miðbæ Reykjavíkur. Það er líka frábært að hafa snúrur til að hengja þvottinn út á - lúxus að fá útilykt í þvottinn. Ég á æðislega nágranna. Addú og Sindri eru best í heimi. Þegar ég kom heim í nótt kl. 5 eftir að hafa vakað yfir kostningasjónvarpinu með móður minni í Kópavoginum þá gladdist ég mjög yfir því að nota ekki áfengi. Alla leiðina frá því ég steig út út húsi hjá henni þar til ég kom heim til mín var fólk að týnast heim til sín all verulega drukkið, reikult í spori og ósjarmerandi í alla staði. Nú er ég vöknuð, hress og skýr í kollinum en þau ekki. Ég á leið út með hundinn að ganga og svo að týna mér á flickr, þar sem myndirnar mínar fá ótrúlegar viðtökur. Það er frábært að kynnast því samfélagi sem þar er og öllum þeim frábæru ljósmyndurum sem til eru um allan heim.

