lokað rými
Eigandi Goldfinger og nektardansmær voru sýknuð af ákæru um að einkadans hafi átt sér stað í lokuðu rými á Goldfinger. Dómararnir mátu það sem svo að ekki hafi verið um lokað rými að ræða þar sem það hefði verið hægt að opna það með því að draga tjaldið sem var fyrir frá. Svona hljómaði frétt í útvarpinu kl. 16 í dag.
Það er nú samt spaugilegt að skoða skilgreiningu vinnueftirlitsins á lokuðu rými í þessu samhengi.
