ég þurrkaði út öll símanúmer úr GSM símanum - óvart
Ekki spyrja mig hvernig ég fór að þessu en ég var í losti í nokkrar mínútur - þarna voru öll símanúmer og sem ég þarf á að halda og meira til.
Þá mundi ég að ég get sínkróníserað símann og adressubókina í tölvunni. Svo ég gerði það og þurrkaði þar með út - óviljandi - allar upplýsingar í adressubók tölvunnar sem voru sínu ítarlegri en það sem var í símanum; heimilisföng, afmælisdagar og fl. KRÆST, hvað var ég að hugsa! Þegar maður sínkróníserar tölvuna og síman breytast allar þær upplýsingar í fyrra tækinu sem SÍÐAST voru breyttar (eyddar út í þessu tilviki) í seinna tækniu.
Ég leitaði logandi ljósi á gúgúl að því hvernig maður nær í eyddar skrár og svarið var: ekki hægt á Makka, bara taka bakköpp! Ég gerði síðast bakköpp fyrir 3 mánuðum!!!!
Svo allt í einu fattaði ég að það var ekki rétt hjá mér því ég geri sjálvirkt bakköpp á helstu atriðum, einu sinni á dag yfir á netsvæði .Mac sem ég er með í áskrift. Þvílíkur léttir, ekkert mál, bara sækja adressubókina af netinu og sínka svo síman við tölvuna og VOLA allt komið á sinn stað aftur. SJÚKK.
Ég er að segja ykkur það: GERIÐ BAKKÖPP AF TÖLVUNNI - það marg borgar sig.
