blogg Archive október 2006

kreisí

Ráðhúsmarkaðurinn var kreieieieisí.

Vá hvað það var mikið fólk. Ég dó næstum því úr þreytu og verkjum í fótunum.

Það fóru út um 500 bæklingar frá mér. Og áhuginn var mikill og margir að pæla.
Gaman hvað það voru margir sem höfðu vit á handverki og höfðu orð á því sem vel var gert. Þá er vandvirknin ekki til einskis. Salan fór hægt af stað en gekk síðan mjög vel og ég seldi nánast allt sem ég átti. Er komin með pening fyrir hluta af næsta VISA reikning.

Því fer fjarri að ég lifi af þessu þó ég selji allt sem ég geri - afköstin eru ekki meiri - starfsorkan er ekki upp á marga fiska. Verst að helv. skatturinn trúir því ekki að ég selji ekki meir en ég geri. Ég ætla nú samt ekki að láta þá þvinga mig til að fara að skálda eitthvað upp.

Handverk og Hönnun í Ráðhúsinu 26.-29. október

Plakat-4


markaður í Ráðhúsinu

bodskort_textmedium

Polki minn

IMG_7528

Hellnar júni 2006

F1040036

ósæmandi hjartsláttur

Ég er með ósæmandi öran hjartslátt (unappropriate sinus tachycardia). Svo sem ekkert við því að gera þar sem það er að öðru leyti í lagi. Svolítið skondin nafngift. Hjarta mitt slær ósæmandi í brjósti mér...


Er á haus að undirbúa Ráðhúsmarkaðinn sem ég tek þátt í 26.-29. október ásamt 58 öðru handverksfólki.

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831