blogg Archive nóvember 2007

er hægt að skala ofbeldi?

Ég verð oft hugsi þegar ég heyri í fréttum sagt frá ofbeldisverkum þar sem tekið er fram að það hafi verið óvenju hrottafengið eða fólskulegt; hvernig getur ofbeldi ekki verið hrottafengið eða fólskulegt?


Nýlegt dæmi í fréttum er þegar sagt var frá niðurstöðum dómsmáls þar sem dómararnir réttlættu óvenju þungan dóm með því að nauðgunin hafi verið óvenju ruddafengin, gróf og svívirðileg. Aftur spyr ég: Hvenær er nauðgun ekki ruddafengin, gróf og svívirðileg? Í mínum huga er ofbeldi eins og nauðgun alltaf mjög slæm og hlýtur að hafa alvarlegar afleiðingar hvort sem hún telst hrottaleg eða ekki. Það sem ég er að reyna að segja er að ég tel að skali um misslæma nauðgun eigi ekki við. Atburður eins og nauðgun skorar það hátt í „slæmsku“ skalanum að það er að mínu mati ekkert rúm fyrir styrkleika mun. Mér finnst þetta líka eiga við um morð. Afleiðingin er sú sama hvort sem morðið er hrottalegt eða ekki. Eitt morð er ekkert skárra en annað. Ef þið skiljið hvað ég er að fara?


Kanski hugsa ég þetta of þröngt. Bara út frá eftirstöðvunum fyrir fórnarlambið. Kanski er okkur tamt að sundurgreina ofbeldisverk eftir styrkleika þeirra til að sundurgreina hversu slæmur gerandinn er. Af því okkur finst óhugnarlegt og óhugsandi að manneskja geti gert annarri manneskju eitthvað svona voðalegt. Að sá sem telst ekki hrottalegur í verknaði sínum sé skárri en sá sem er hrotti. Nei mér finnst þetta ekki ganga upp og kem bara aftur að því sama. Hvernig getur maður sem fremur ofbeldi ekki verið hrottalegur í þeim gjörningi sínum?

Varmalandsmeyjar

Á sunnudagskvöldið sl. hittumst við gamlar bekkjarsystur úr Varmalandsskóla. Sumar hafði ég ekki hitt síðan í 9. bekk (sem nú myndi kallast 10. bekkur). Rosalega gaman að hitta þær allar. Við stefnum á að hittast aftur fljótlega á næsta ári.

ný hjásvæfa

Ég er búin að vera að sofa hjá í viku. Það var svolítið skrítið fyrst og Polka leist ekki vel á rúmfélaga minn.  Núna gengur þetta ljómandi vel og ég alveg endurnærð á morganna.  Ég þarf bara að muna eftir að setja bólfélagan í samband því hann gengur fyrir rafmagni... er sem sagt vél.  Nánar tiltekið öndunarvél. Ég er með kæfisvefn. Mikil tilbreyting að það skuli vera til svona góð lausn við þessu vandamáli.  Engin lyf bara vél. Reyndar ekkert rosalega sexí rúmfélagi en gerir heilmikið gagn... meir en aðrir sem ég hef reynt.  Mikill munur að vakna með súrefni í heilanum.

Brynja ég elska þig...

Sumum kann að finnast síðasta bloggfærslan mín harkaleg viðbrögð, að það sé nú ekki búið að sanna eitt né neitt. Ég segi bara, forsvarsmenn þessara verslanna (Krónunnar, Bónus, Hagkaups og Tíu ellefu) eru búnir að segja nóg til að mér sé nóg boðið. Burt sé frá samráði eða ekki. Það sem þeir viðukenna fúslega í fréttum er yfirdrifið nóg til að mér sé vægast sagt misboðið.

Systir mín hefur staðið Krónuna að því að hilluverð ljósaperu er annað en verðið við kassan þar sem það var helmingi hærra. En þegar hún gerði athugasemd við það þá var eftir miklar tilfæringar (þegar hún fór að hækka röddina) hægt að finna rétta verðið í kassanum. Bæði verslunarsjórar Bónus og Krónunnar segajast breyta verði á yfir 100 vörutegundum á dag eftir að hafa fengið upplýsingar um verð „samkeppnisaðilans". Er það í þágu neytenda? Nei svo aldeilis ekki. Ég vil geta verslað ódýrt í Bónus fyrir hádegi og seinnipartinn en ekki bara um miðjan daginn.  Hverning í ósköpunum á ég að geta fylgst með verði og borðið saman milli verslanna ef verðið breytist mörgum sinnum á dag. Verslunarstjóri í Bónus viðurkennir að ódýrustu kjötvörurnar séu kallaðar verðkönnunnarkjöt, það sé "vinnuheiti" og þær vörur séu oft á botni frystisins eða kælissins. Hvað segir þetta manni? Ha?  Mér finnst óþolandi að ef ég versla í Bónus sem fréttamaður þá fái ég vöruna ódýrari. Hvaða rugl er það?

Finnur Árnason forstjóri Haga (Bónus Hagkaup og tíu ellefu) viðurkennir að í Bónus sé verðið á vörunni ekki alltaf það sama inni í búð og við kassan. Það er ólöglegt. Við höfum skýlausan rétt á því að borga það verð fyrir vöruna sem hún hefur í hillunni. Finnur segir að því miður komi þetta fyrir. Ég segi bara líka því miður dugar mér ekki þessi afsökun. Hvernig væri að nýta starfskrafta starfsfólksins í að hafa þetta atriði í lagi en ekki vera út um allan bæ að hnýsast og breyta verðum mörgum sinnum á dag! Eina leiðin til að versla við þessar verslanir er að taka mynd af hilluverði (þar sem eru rafrænar merkingar dugar ekki að skrifa verðið hjá sér) hverrar einustu vöru sem ég versla í viðkomandi búiðum og bera það svo saman við það sem kemur á kassanum... hver hefur tíma í svoleiðis rugl?

Svo þvinga þeir byrgjana til að taka á sig verðlækkanirnar en gefa ekki eftir krónu sjálfir þegar þeir eru með vörur á lágmarksverði (það er nú ekki svo sjaldan sem þeir hafa stært sig af því að borga með vörunni til að geta boðið neytendum hagstæð verð... nei nei, þá eru það bara aumingja kartöflubændurinir sem sitja eftir með sárt ennið).

Héðan í frá fær kaupmaðurinn á horninu mín matvöru innkaup:

Melabúðin

Pétursbúð, Ránargötu 15

Rangá, Skipasundi 56

Sunnubúðin, Mávahlíð 26

Fjarðarkaup Hafnarfirði

Ég hvet alla til að gera það sama!

Koma svo... allir saman nú!

Stefán Máni skrifaði pistil í Fréttablaðið í gær með yfirskriftinni: Brynja ég elska þig. Þær upplýsingar sem þar komu fram gera það að verkum að ég elska Brynju heitar en áður . Ég er hætt að versla við Byko, þeir selja 10 skrúfur á 500 kr sem hægt er að fá á 250 kr í Brynju. Ég hef alltaf verslað mikið í Brynju enda er hún í 3 mín. göngufjarlægð hjá mér og í henni fæst alltaf það sem ég leita að, alltaf.  Ég er hætt að halda framhjá Brynju, héðan í frá verður hún mín bygginggavöruverslun. Ég vil geta keypt eina skrúfu (það er ekki hægt í Byko) og ekki er verra að hún er hræódýr.

samkeppni my as

Það er nú meira hvað frjáls markaður og samkeppnisumhverfi er góð fyrir budduna mína! Frjálshyggju kjaftæði. Wikipedia skilgreinir frjálshyggu svona:


Frjálshyggja (en. libertarianism, neo-liberalism, classical liberalism) er sú stjórnmála- og stjórnspekiskoðun, að setja beri ríkisvaldinu þröng takmörk, en treysta þess í stað aðallega á frjáls viðskipti og sjálfsprottnar venjur.“


Ég er brjáluð yfir fréttunum af því hvað frjálshyggjan hefur framkallað á matvörumarkaði. Meint samráð er ekki það sem fer mest fyrir brjóstið á mér þó vissu lega sé það óþolandi en það er þó ólöglegt og það ætti að vera hægt að taka á því. En að það tíðkist að veriðið sé alltaf að breytast, mögum sinnum á dag og að það séu faldar svokallaðar verðkönnunar vörur sem eru miklu ódýrari og að kynni ég mig sem fréttamaður þá fái ég ódýrari vöru.


Ég er hér með hætt að versla við Bónus, Krónuna og tíu ellefu nema að ég ákil mér rétt til að fara þangað ítrekað og vera með uppistand! Ég mun kynna mig sem fréttamann og krefst þess að fá verðkönnunnar kjöt og mun þá kaupa upp lagerinn eða fara um búiðina og benda fólki á hvar það sé að finna. Og í öllum tilvikum krefst ég þess að tala við verslunarstjóran.


Ég hvet alla til að segja okrinu stríð á hendur og hætta að vera leiðitamir neytendur sem líður bara vel með að treysta [...] á frjáls viðskipti og sjálfsprottnar venjur.

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831