persónan

Sumir þekkja mig bara undir nafninu Mold aðrir hafa alltaf kallað mig Möggu en nokkrir Möggu Mold.  Sumir segja Margrét eða dr. Margrét.  Fjölskyldan kallar mig stundum Möggu móðu.


Ég ólst upp í Hreðavatnsskála hjá foreldrum mínum Olgu Sigurðardóttur og Leópold J. Jóhannessyni.  Ég er yngst sjö systkina sem öll eru eða voru (Anna og Leifur eru dáin) miklir snillingar. 

Ég er læknir, myndlistarmaður og textílhönnuður að mennt.  Ég vann framan af sem læknir en síðan iktsýkin (tegund liðagigtar) fór að hrjá mig hef ég lítið sem ekkert getað stundað vinnu á almennum vinnumarkaði.  Ég er dunda heima við eftir getu, mest að sinna listagyðjunni.  

Það kemur fyrir að ég taki að mér aðþrengda nemendur og kenni þeim einslega stærðfræði, efnafræði, eðlisfræði, náttúrufræði eða jarðfræði.  Helst stærðfræði og efnarfæði. Mestum árangri næ ég með lesblindum nemendum.

Síðast liðin ár hef ég tekið mikið af ljósmyndum og hef verið að reyna að selja þær á netinu. Eitthvað geri ég af myndlist en ég mála ekki, heldur geri svona nútímalist, t.d. myndbönd.  Lengi vel var ég að hanna, sauma og silkiþrykkja hörlöbera en kreppan kemur í veg fyrir innflutning á hör sökum gríðalegs kostnaðar. Á tímabili leyfði ég öðrum að halda myndlistarsýningar á heimili mínu undir merkjum Heima er best.  Heima er best menningarstarfsemi Margrétar er í raun yfirskrift alls þess sem fer fram á heimili mínu með eða án annarra.


Við móðir mín erum búnar að vera að framleiða kærleikshjörtu sem við köllum Lúllu hjörtu frá því haustið 2007.


Við Leópold frændi minn hönnum og búum til stuttermaboli, þegar tími vinnst til hjá honum og heilsan leyfir mér.  Það samstarf heitir: Leopold's Royal T-Shirt Company


Við Jóhanna, mamma hans og systir mín, köllum okkur Glöggar systur.  Við höfum staðið fyrir sýningum á listmunum og handverki á Írskum dögum á Akranesi. 


Ég er í Rauðakross Íslands og Gigtarfélaginu. Ég er meðlimur Kvennakirkjunnar og sæki þangað gleði, styrk, frelsi, frið og femínisma.

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831