umhirða á silkiþrykktum hör
Silki þrykklitirnir sem ég nota eru vatnsleysanlegir og vistvænir. Hörþráður er vistvænn framleiðsla en flókin. Hann er unnin úr trefjum lín plöntunnar og hefur svipaða eiginleika og bómull. Eins og hún drekkur hann vel í sig vökva, er sterkari blautur en þurr og þolir háan hita. Hann hleypur þó minna en bómullin en þolir síður velking.
Ég þvæ silikiþrykktan hör í mesta lagi við 60°C og þá helst ef hann er mjög óhreinn. Það er heppilegast að þvo hör á 40°C í þvottavél á ullarprógrammi, til að þráðurinn brotni minna. Setjið hörinn blautan og í kuðli inn í þvottavélina og varist að hafa of mikinn þvott í vélinni. Allt þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að það myndist brotaför og að hörinn mýkist og þynnist alltaf á sama stað. Bæði hörinn og silkiþrykkið þola blettasprey sem eru án klórs. Notið þvottaefni sparlega eða a.m.k. skolið það vel úr, því þvottaefnisleyfar geta myndað brúna bletti í hör.
Ekki að strauja þurran hör nema með góðu gufustraujárni sem hefur meiri gufuþrýsting en 95 g/mín. Best er að strauja hör meðan hann er blautur því það fer betur með hann og aðeins þannig þolir hann hæsta hitastig. Einnig nást krumpur úr silkiþrykkinu betur ef það er straujað blautt. Strauið hörinn fyrst á röngunni og síðan á réttunni þar til hann er nánast þurr. Þannig fæst gljái og stífleiki sem mér finnst eftirsóknarverður í innanhúss textíl. Silkiþrykkið er best að strauja sem mest á röngunni því það er alltaf svolítið stamt fyrir straujárnið.
Best er að geyma hörlöber upp rúllaðan. Rúllið honum upp á hólk undan eldhúsrúllu eða gjafapapír en fjarlægjið hólkinn svo því að hann er of „súr” fyrir hörinn til lengdar.