Ég sel eign hönnun, myndlist og ljósmyndir.
Smelltu á myndirnar hér að neðan til að skoða hvern flokk nánar.
ljósmyndir
Ljósmyndir mínar má finna á vefnum www.flickr.com/mold
Margar þeirra mynda eru til sölu á sölusíðunni http://mold.imagekind.com
Ef þig langar að kaupa einhverja mynd sem er á flickr en ekki á imagekind/sölusíðunni, hafðu þá samband við mig og ég skelli henni inn á sölusíðuna.
hjörtu
Haustið 2007 fóru hjörtu úr endurunnum efnum að verða til í höndunum á okkur mæðgum, móður minni Olgu Sigurðardóttur og mér. Við köllum þau all flest Lúlluhjörtu í höfuðið á Ljótunni Jónsdóttur, heitinni, saumakonu og miklum fjölskylduvin.
Hjörtun má nota sem jólaskraut, páskaskraut eða hversdagsskraut. Þau eru tilvalin tækifærisgjöf þegar þörf er á að sýna að einhver er þér hjartfólgin, á gleði- eða sorgarstundu.
löberar
Lengst af hef ég selt hörlöbera og brauðklúta með áþykktu mynstri en hátt hörverð vegna óhagstæðs gengis veldur því að sú framleiðsla liggur nú niðri. Því miður. Vonandi breytist það einn daginn.
myndlist
Myndlistina mína má finna hér á síðunni. Ef einhver hefur áhuga á að kaupa hana af mér þá er um að gera að hafa samband og við ræðum málin.



