Lúlluhjörtu

Lúlla

Ljótunn Jónsdóttir fæddist í Geirshlíð í Flókadal 16. apríl 1914 - lést 7. september 2008

Lúlla er til hægri á myndinni en Guðrún Ingimarsdóttir til vinstri

móðir mín

Olga Sigurðardóttir f. 9. ágúst 1932

Olga á Húsmæðraskólanum á Varmalandi 1952/3


Hjörtun má nota sem jólaskraut, páskaskraut eða hversdagsskraut. Þau eru tilvalin tækifærisgjöf þegar þörf er á að sýna að einhver er þér hjartfólgin, á gleði- eða sorgarstundu.

Hjörtun kosta 1500 kr. stykkið. Hafið samband í gegnum tölvupóst eða síma.


Haustið 2007 fóru hjörtu úr endurunnum efnum að verða til í höndunum á okkur mæðgum, Olgu Sigurðardóttur og Margréti Oddnýju Leópoldsdóttur

Hjörtun eru unnin úr afgangsefnum, flíkum, dúkum, perlufestum, tölum úr töluboxum kvenna í fjölskyldunni, blúndum, skrautborðum, (t.d. þeim sem eru saumaðir inn í axlarsaum fatnaðar svo hann fari ekki útaf herðatrénu) og öðru því sem við áttum í fórum okkar.  Endurvinnsla með ást á fólki og jörðinni var upphaflega hugmyndin.  Öll hjörtun eru saumuð saman í vél (Margrétar verk) og síðan skreytt í höndunum (Olgu verk) og útkoman er einstök hjörtu með sál og sögu (ekkert eins). 

Flest hjörtun heita Lúllu hjörtu í höfuðið á Ljótunni Jónsdóttur, saumakonu og miklum fjölskylduvin. Sumt af efniviðinum kemur frá Lúllu. Hún var starfsstúlka í Hreðavatnsskála meðan Olga og Leópold ráku staðinn (og reyndar hjá Vigfúsi fyrirrennara þeirra líka). Lúlla vann samt lengst af sem saumakona. Saumaði fína kjóla á frúr í Reykjavík og síðar íþróttaföt hjá Henson. Lúlla var blind síðustu ár ævi sinnar þannig að hún sá aldrei hvernig hjörtun litu út en hún hafði unun af því að handleika þau og með þaulæfðum saumakonu höndunum sínum sá hún þau fyrir sér ljóslifandi.

Sum hjörtun köllum við ömmu- og afa hjörtu. Þau eru unnin úr upphlutssvuntu Margrétar Oddnýjar Hjörleifsdóttur (móður Olgu) og því sem gekk af skyrtuefni skyrtu þeirrar sem Olga saumaði á föður sinn, Sigurð Kristjánsson sumarið 1956.

Sjá grein og myndir „Hannyrða- og jólaverkstæði skapandi mæðgna".  Morgunblaðið - Jólablað, föstudaginn, 30. nóvember 2007.

© Margrét O. Leópoldsdóttir • Klukkuberg 39 • 221 Hafnarfjörður • 551 5831 • 699 5831