Myndlistin er mitt akkeri. Minn griðastaður. Hún er mín hugleiðsla og mín heimspeki. Ég fæddist með hana í sálinni. Ég stunda hana í skorpum. Ég hef hinsvegar ekki neinn drifkraft í að sýna verkin mín. Þegar hugmyndin verður til þá fæ ég mitt kikk. Þannig er upplifun mín mjög prívat. Það kemur fyrir að mig langi líka að búa listaverkið til og er þá bara ánægð þegar það er búið. Líklegast er þessi vettvangur það lengsta sem ég kemst með sýna myndlistina mína í framtíðinni.



























