Dúkar, löberar og brauðklútar
Lækningajurtir á hör er fyrsta textíl serían mín. Hún saman stendur af hörlöberum og brauðklútum með silkiþrykktum myndum sprottnum úr íslenskri náttúru. Mynstrin eru blóm sóleyjar, hvannar, baldursbrár og fífils.
löber
Löber er renningur eða mjór dúkur úr hör sem passar vel á borðstofuborð endilangt, á kommóðu eða skenk. Líka er fallegt að leggja nokkra löbera þvert á borðstofuborð og láta endana lafa út fyrir.
brauðklútur
Brauðklútur er servíetta úr hör í stærri kantinum (50x50 cm) til að nota í brauðkörfur. Í minni körfur dugar ein en í stærri tveir. Eins má setja brauð inn í klútin og setja það þannig beint á borðið upp á ítalska vísu.
Mér þykir leitt að tilkynna að ég framleiði ekki lengur þessa hörlöbera og brauðklúta vegna kreppunar (brjálað gengi og gríðarlega dýr hör). Er að leita leiða til að geta haldið áfram á sömu eða svipaðri braut.
aðferðin
Ég útbý ramma eftir teikningum mínum af mynstrinu og nota þá til að þrykkja mynstrin á efnið. Þetta kallast silkiþrykk og er aldagömul aðferð til að koma mynstrum á efni, papír og keramik.
Litirnir sem ég nota eru svokallaðir vatnsleysnlegir akramín- eða pigment litir sem límast við þræðina eftir að hafa verið hitaðir talsvert um tíma. Þeir eru mjög ljósfastir, þ.e. dofna ekki við sólarljós en nokkuð viðkvæmir fyrir velking og hennta því síður í fatnað.
Siðan brýt ég fald eftir þræði og hef hann nokkuð breiðan nema ef ég hef kögur til endana. Faldinn sauma ég í saumavél með vængjaðri nál og spori sem myndar falskan gatasaum (húllsaum).
eftir máli
Ég sauma eftir máli að ykkar ósk en þó ekki breiða dúka (heila borðdúka). Þó tek ég séróskir til greina og því um að gera að hafa samband.
litir
Í grunnin getur löberinn eða brauðklúturinn verið hvítur eða hörlitur (óbleiktur hör, grádrapp). Aðra liti á ég ekki um þessar mundir. Litur mynstursins getur verið hver sem er og jafnvel svolítið gylltur.
mynstrin
Mynsturtegundirnar eru fjórar, sóley, fífill, baldursbrá eða hvönn. Mynstrin geta ýmist verið í beinni röð eða óreglulega út um allt og út fyrir efnið. Ég átti aðra gerð af baldursbrá (með útbreiddan faðminn) en sá rammi er ónýtur og hef ég ákveðið að endurnýja hann ekki.
faldur / kögur
Flestir löberarnir eru með breiðum fald. Ég geri þá líka með kögri til endanna ef fólk vill og þá er faldurinn á kantinn mjór. Mér finnst kögur fallegt á löbera sem notaðir eru á gamaldags / antik skenki og kommóður - nota þá þannig að þeir lafi út fyrir.
Á ekkert lengur til á lager, því miður!




















