Oddný og Jóhannes

Oddný Guðmundsdóttir

25. júlí 1875 - d. 26. apríl 1959

Oddný fæddist í Gröf, Óspakseyrarhreppi, Strandasýslu.

Hún var yfirsetukona, saumakona og húsfreyja í Skálmardal Múlahreppi, A.- Barðastrandarsýslu og síðar í Hnífsdal. Hún var oft kölluð Oddný ljósa með tilvísun í yfirsetukonustarfið.

Foreldrar Oddnýjar voru:

Sigurlaug Jónsdóttir f. 14. júní 1835 í Prestbakkasókn - d. 18. maí 1907. Húsfreyja í Gröf, Óspakseyrarhreppi, Strandasýslu. 

Guðmundur Ketilsson f. 1. janúar 1836 í Óspakseyrarsókn Strandasýslu - d. 18. júní 1914. Bóndi í Gröf, Hlíð, Fellshreppi, Strandasýslu.

Jóhannes Guðmundsson

6. janúar 1873 - d. 13. október 1951

Jóhannes fæddist í Skálmardal Múlahreppi, A.- Barðarstrandarsýslu.

Jóhannes var síðar bóndi á sama bæ og svo sjómaður í Hnífsdal. Enn eru til menn sem búa á Ísafirði og unnu sem unglingar með Jóhannesi í fiski og þekktu hann undir nafninu Jói á Laugabóli. Jóhannes ólst upp á Laugabóli við Ísafjörð í Ísafjarðadjúpi, hjá Guðrúnu Þórðardóttur föðurömmusystur sinni.

Foreldrar Jóhannesar voru:

Ingibjörg Jóhannesdóttir f. 20. júlí 1844 á Kirkjubóli í Barðastrandasýslu.  D. á Ísafirði 12. mars 1930

Guðmundur Arason f. 15. október 1845 í Gufudalssókn, A-Barðastrandasýslu. D. 9. júní 1900. Guðmundur var bóndi á Illugastöðum, Múlahrepp.

Saga Oddnýjar og Jóhannesar

Oddný og Jóhannes kynntust á Laugabóli við Ísafjörð þar og hún var um tíma vinnukona. Oddný og Jóhannes eignuðust 13 börn í sínu hjónabandi þar af eina tvíbura. Börnin fæddust á árabilinu 1900 -1917. Ellefu barnanna komust á legg. Mörg þeirra voru send í fóstur. Sjálf áttu Oddný og Jóhannes eina fósturdóttur sem jafnframt var barnabarn þeirra; Sóley Sveinsdóttir (dóttir Hallfríðar). Börn Oddnýjar og Jóhannesar voru/eru þessi:

Guðmundína Ingibjörg (1900-1985), Guðlaug (f. 4. maí 1902 # - 1913*), Hallfríður (1903-1988), Guðjóna (1904 - 1957), Guðbjörg (skírð 8. júlí 1906 - d. 25. júlí 1910 #/ dó 1911 þá 6 ára*), Ólafur Helgi (1907 - 1988), Auðunn (1908 - 2003), Ari Líndal ° (1910 - 1986), Guðbjörn (1911 - 1997), Ólöf Sigurbjörg (1912 - 1999), Sigurður (1914 - 2002), Guðmundur (1914 - 1976) og Jón Leópold (1917).

#heimild: Tröllatunguættin og Íslendingabók

*heimild: Handskrifað blað Oddnýjar sjálfrar í fórum Margrétar Oddnýjar Guðmundsdóttur.

°Ari er skráður Líndal í Tröllatunguættinni en Lyngdal í Íslendingabók

aðrar heimildir:  Leópold Jóhannesson

höfundur og ábyrgðaraðili: Margrét Oddný Leópoldsdóttir