Guðjóna

Guðjóna eða Jóna eins og hún var kölluð fæddist 8. september 1904. Hún var húsfreyja í Reykjavík. Jóna eignaðis 11 börn með eiginmanni sínum Jóni. Þrjú þeirra létust á unga aldri.

Maki (skildu): Jón Jóhann Katarínusson, f. 18. júlí 1898 - d. 11. des. 1987, verkamaður. Börn þeirra: Einar Jón (1923-1997), Guðbjörg Guðlaug (1924-1987), Halldóra (1926-1927), drengur (1927-1927), Katrín Solveig (1929-2006), Oddur Jóhannes (1931), Jón Kati (1933-1935), Vilmundur (1935-1999), Kristín Margrét (1937), Katarínus (1938) og Óli Jón (1939).

höfundur og ábyrgðaraðili: Margrét Oddný Leópoldsdóttir