Leópold

Jón Leópold, eða Polli eins og hann er stundum kallaður, fæddist 16. júlí 1917 á Ingunnarstöðum í Múlasveit, A-Barðastrandasýslu.

Hann ólst upp á Laugabóli við Ísafjörð frá 2ja ára aldri. Fóstra hans var Halla Eyjólfsdóttir skáldkona. Leópold var skírður Jón Leópold í höfuðið á börnum Höllu fóstru sinnar, Jóni og Leópoldínu, börnum sem Halla missti úr barnaveiki. Halla hafði sjálf skírt einn sona sinna eftir sömu börnum og því var annar Jón Leópold fyrir á heimilinu þegar Leópold var tekin í fóstur. Sá var alltaf kallaður Jón L. en Leópold kallaður Leópold eða Polli. Þar sem Jóns nafnið festist aldrei við Leópold þá lét hann breyta nafni sínu í þjóðskrá úr Jón Leópold í Leópold Jón.

Leópold fór fyrst að heiman í eitt sumar á síld til Siglufjarðar þá aðeins 16 ára að aldri. Hann fór árið eftir sem vinnumaður í Vatnsdal í Húnavatnssýslu og var þar í 2 og hálft ár. Þaðan fór hann sem vinnumaður að Hólum í Steingrímsfirði þar til hann fór í Bændaskólann. Hann útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri vorið 1939 eftir nám í tvo vetur. Fór til Reykjavíkur 10 dögum eftir að Ísland var hernumið til að ná sér í vinnu. Byrjaði á því að taka bílpróf og vann  við allt mögulegt; t.d. sem leigubílstjóri, vörubílstjóri og á krana við að landa síld úr Hvalfirði við höfnina í Reykjavík. Hann byrjaði hjá Vegagerð Rískisins 1946 og fór strax á verkstjóranámskeið. Vann síðan sem  verkstjóri hjá vegagerðinni þar til hann varð  veitingamaður í Hreðavatnsskála árin 1960-1977. Vann síðan aftur hjá Vegagerðinni og Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur vann hann fulla vinnu hjá Olíufélaginu - Esso þar til hann var rúmlega 78 ára gamall er hann sagði starfi sínu lausu.

Fyrri kona: María Magnúsdóttir, f. 25. febrúar 1918 í Hrútsholti Eyjahreppi, Happadalssýslu - d. 12. sept. 1996 í Reykjavík. Börn þeirra: Anna Sigurbjörg (1944-1989), Magnús (1946) og Hallur Valþór (1948).

Seinni kona: Olga Sigurðardóttir, f. 9. ágúst 1932 í Hrísdal, Miklaholtshreppi, Snæfellsnesi, veitingakona í Hreðavatnsskála (1960-1977) og síðar matráðsmaður. Börn þeirra: Jóhanna Gunnborg (1956), Sigurður Hjarðar (1957), Leifur Einar (1965-1995) og Margrét Oddný (1967).

höfundur og ábyrgðaraðili: Margrét Oddný Leópoldsdóttir