Ólafur

Ólafur fæddist í Bolungarvík 20. september 1907, en fluttist á fyrsta árinu með foreldrum sínum í Skálmardal við Breiðafjörð.  Þar ólst hann upp til tólf ára aldurs en 1919-1920 var fjölskyldan í Hafnardal í Ísafjarðardjúpi og síðan í Hnífsdal og flutti loks til Ísafjarðar 1927. Ólafur var í smalamennsku á sumrin á unglingsárunum víðsvegar við Breiðafjörð. Um 1927 fór Ólafur að heiman og var þá vinnumaður í Önundarfirði um skeið og á Laugabóli í Ísafjarðardjúpi. Þá var hann vinnumaður í Kalmanstungu í Borgarfirði í fjögur ár.  Árið 1942 lá leiðin aftur til Ísafjarðar þar sem Ólafur stundaði ýmis verkamannastörf.  Árið 1947 fluttu Ólafur og Ingibjörg til Reykjavíkur þar sem þau voru til 1950 er þau fluttu í Kópavoginn þar sem þau bjuggu síðan.

Barnsmóðir: Tómasína Þórunn Þórólfsdóttir, f. 17. júní 1913 - d. 2003. Barn þeirra: Guðlaugur (1931 - 2010).

Maki: Ingibjörg Kristgerður Árnadóttir, f. 29 des. 1916 - d. 3. des. 1988. Börn þeirra: Sigrún (1946), Oddný (1948), Fríða Sólveig (1950-2009), Jóhanna (1951), Anna Kristín (1953) og Hrafnhildur Helga (1960).

----------------------------------------------------------

Niðjatal Ólafs, birtist hér að neðan sem mynd (afkomendur Ólafs) og sem PDF skjal (Niðjatal til niðurhals), með góðfúslegu leyfi höfundar; Oddnýjar Ólafsdóttur. 

Það á að vera hægt hala skjalinu, Niðjatal til niðurhals, niður með því að hægri smella á nafn þess, við það kemur upp gluggi þar sem stendur: Save Linked file...(ef það gengur ekki sendu mér þá línu!)

höfundur og ábyrgðaraðili: Margrét Oddný Leópoldsdóttir